12.9.2006 | 12:29
I just call, to say,,,,,,,,,,,,
Ég er ekki orðin amma hahahahaha
ooo nei hún ætlar sko að láta bíða eftir sér litla daman og allir orðnir mjög óþreyjufullir. Hannsa Panns er rosalega dugleg að fara út að ganga, í heitt bað, ryksuga skúra og já guð má vita hvað en allt án árangurs, ég held að daman sé bara að reyna að segja okkur það að við ráðum bara nákvæmlega engu,,,,það er hún sem ræður og enginn annar, hún kemur þegar að það hentar henni. vonandi bara að þetta sé ekki vísun í það sem verður hahahahaha þó að það komi mér nú ekkert á óvart þó að það verði þannig að hún stjórni öllum ömmum, öfum, frænkum og frændum og já bara þeim sem henni dettur í hug.
Nú er líka byrjað þetta símavesen hahahha sem maður vissi svo sem að yrði ef hún gengi fram yfir, fullt af fólki að hringja og forvitnast hvernig gangi og minna mann á að gleyma ekki að láta vita þegar prinsessunni þóknast að koma hehehe já það verður sko alveg örugglega nóg talað í símann þegar að þetta er búið,, maður verðu bara að vera duglegur að skipta um eyra svo að annað eyrað verði ekki bara flatt eftir símtól og nokkrum númerum of stórt hahahaha.
en ég kem alveg pottþétt með að koma með það hingað inn þegar að hún er búin og auðvitað myndir
en þið sem eruð að kíkja hingað inn megið nú alveg skella inn einni eða tveim línum í gestabók eða komment svo að maður viti af ykkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.9.2006 | 23:12
enn er beðið...
Mamma og pabbi komu í kaffi til okkar í gær ásamt Guðbjörgu og strákunum og stoppuðu þau bara nokkuð lengi, æji það var gaman að fá þau í heimsókn, það er nú ekki það oft sem þau láta sjá sig. Ekki það að ég sé eitthvað duglegri að heimsækja þau hmmmmm nei það er sko langt frá því, að vísu er ég ekki dugleg að heimsækja einn né neinn eða dugleg að vera í sambandi yfirhöfuð . Undanfarnar vikur hef ég verið mjög þung og hef varla hreyft mig út úr húsi nema bara rétt til að versla og er sko alveg tími kominn á að gera eitthvað í þeim málum.
ég hef ekkert heyrt frá Ingu Hönnu síðan um verslunarmannahelgi svo að ég ákvað að bjalla aðeins í hana í dag og auðvitað hélt hún að ég væri að hringja til að segja henni að eitthað væri búið að ske hahahaha en nei nei litla ömmuprinsessa lætur sko bíða eftir sér þannig að ég hafði auðvitað engar svoleiðis fréttir fyrir hana systur mína en hún ákavað að kíkja aðeins við hjá okkur í dag, hún borðaði hérna með okkur en var svo að fara á næturvakt.
jæja annars er lítið að fréttasvona annars nema auðvitað er það frétta efni að einkasonurinn er enn að vinna í Vífilfell og líkar bara rosalega vel að eigin sögn og það er jú góðs viti. Elísabet gengur bara nokkuð vel í skólanum og ákvað í síðustu viku að byrja aftur í körfuboltanum og ég er rosalega ánægð með það því hún þarf sko alveg á þessari hreyfingu að halda, svo er bara vonandi að áhuginn endist hjá dömunni.
æji langar að skella hérna inn mynd af frumburðinum mínum, hér er hún gengin 39 vikur með frumburðinn sinn :)
þar til næst......
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2006 | 13:36
við bíðum bara og bíðum
Jæja enn sitjum við og bíðum eftir því að litlu ömmuprinsessunni þóknist að koma í heiminn,, henni líður greinilega bara rosalega vel í mömmubumbu og er sko ekkert að flýta sér út í þennan kalda og grimma heim
litla læðan hennar Spessý hún Tiffaný er enn hérna hjá okkur og verður það þar til hún verður seld,, hún er bara svo frábær karakter og ein sú kelnasta sem við höfum verið með lengi svo að það verður erfitt að láta hana frá sér, enda komin fyrirspurn frá heimilismeðlimum hvort að það sé ekki bara hægt að eiga hana áfram hahahaha ef hún fer ekki að seljast bráðlega endar það nú örugglega þannig að hún fær ekkert að fara hahahahaha en svo held ég að ég láti líka litla strákinn hennar furu fyrst að það kemur nýr fress svona fljótt en hann kemur í einangrun í byrjun oktober ,,það er allt rosalega spennandi :) Vicktoría , litlan hennar Candý virðist ætla að þróast mjög vel og er staðan enn þannig að henni verður haldið en hún er sko ekkiminn æðisleg en hin 2. hinn strákurinn hennar Furu (Ceasar) fer á sitt nýja heimili í dag, það verður sko söknuður því þeir bræður eru svo æðislegir og svo eru þeir líka svo góðir vinir, helst hefði ég viljað að þeir fengju að fara saman á heimili þannig að ekki þyrfti að skilja þá að,,,en maður getur víst litlu ráðið í þessum aðstæðum.
hér er mynd af Tiffaný og mynd af stráknum hennar Furu er í kisu albúminu og einnig af henni litlu Victoríu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2006 | 11:14
Magni alla leið
já hér var sko vakað langt frameftir á þriðjudagskvöldið og kosið. Í gær var svo passað upp á að kíkja ekki á neina spoilera eða inn á nokkra síðu sem gæti eyðilagt spenninginn fyrir kvöldinu en það hafði nefnilega gerst í síðustu viku :( já spennan var gífurleg hérna í gærkvöldi og þegar að Brook sagði nafnið hans þá varð maður ferlega vonsvikin eitt sekúndubrot en HALLÓ nafnið hans var bara nefnt til að segja honum að hann gæti sest niður aftur því að hann væri save,,,úfff spennufallið. Við vorum þvílíkt ánægð öll hérna , já þá er Magni kominn alla leið í lokaþáttinn sem er sko ekkert nema bara frábær árangur. Nú er bara að bíða eftir næsta,,,,,, ekki það að ég hef svo sem ekki mikla trú á að Magni vinni þetta en þetta gefur honum bara svo mikla möguleika, það er auðvitað miklu betra að vinna ekki og vera ekki samningsbundinn við einn né neinn og geta bara valið úr þeim tilboðum sem að hann fær, það sem hann telur vera best fyrir sig.
Annars er allt búið að vera bara í rólegheitunum hérna hjá okkur, ég fór í bíó með Hönnu og Helga á sunnudagskvöldið að sjá myndina United 93 og var hún bara nokkuð góð. svo er bara verið að bíða eftir að litla barninu þóknist að koma í heiminn :) en settur dagur er nú reyndar ekki fyrr en á mánudaginn svo að við verðum nú að vera aðeins róleg he he þó að það geti nú stundum verið soldið erfitt fyrir svona strax fólk.
Lítil Hetja sem ég hef fylgst svo mikið með í marga mánuði berjast fyrir lífi sínu, lést í gær. ég þekki hana ekki neitt og ekki hennar fólk en mamman hefur verið svo dugleg að blogga og lofa öllum að fylgjast svo vel með litlu hetjunni sinni í sorg og í gleði, hún hefur kennt manni svo margt með skrifum sínum og hugrenningum að maður stendur uppi sem betri manneskja bara fyrir það eitt að hafa fengið að fylgjast með og kann betur að meta það sem maður á, 3 heilbrigð og stálpuð börn, það eru sko ekki allir jafn heppnir. Hvíl í friði elsku Bryndís Eva.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2006 | 22:29
Til hamingju með daginn......
Kristófer fannar :) já hann er orðinn 15 strákurinn og stór eftir því. Við familien fórum í kaffiboð suður í sandgerði í dag til að heiðra unglinginn.
það hefur nú reyndar allt verið með kyrrum kjörum hjá okkur undanfarna daga ,,,,,kanski sem betur fer og tími til kominn.
Gabríel átti að byrja að vinna í Vífilfell á miðvikudaginn en mætti ekki, bar fyrir sig að hann væri veikur,,,þá var mér eiginlega allri lokið, að hann skyldi bara yfir höfuð voga sér að gera þetta eftir að maður er búinn að gera allt sem maður getur gert til að hjálpa honum með að finna sér vinnu en Maggi hringdi í hann um kvöldið og fékk hann til að lofa sér því að hann myndi nú mæta á fimmtudeginum sem hann og gerði og hefur hann mætt þessa 3 daga óaðfinnanlega og líka staðið sig vel að mér skilst, fjúff loksins....7,9,13
Síðastliðinn föstudag fórum við Sævar í jarðaförina hjá Rúnari heitnum, pabba hennar Guðrúnar vinkonu, mikið svakalega var þetta nú falleg athöfn.
það er ennþá allt með kyrrum kjörum hjá Hönnu nema bara að hún er orðin þreytt greyjið og ég held nú reyndar að Helgi sé alveg að fara yfir um af spenning og vill endilega fara að gera eitthvað til að reyna að flýta fyrir því að barnið komi í heiminn, en það eru nú alveg 2 vikur ennþá í settan dag :)
María kemur líka heim á morgun frá kanaríeyjum eftir 3ja mánaða vinnu þar sem fararstjóri og verður hún sko ekki ósátt við að barnið hafi allavegana beðið eftir henni :) hlökkum til að sjá þig María!!!
læt þetta nægja í bili
adios my friends
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2006 | 21:42
Hann á afmæli í dag,, hann á afmæli í dag... hann á afm.....
Já í dag eru 17 ár síðan að litli strákurinn minn fæddist :) Til hamingju með daginn elsku strákurinn minn.
Við erum því búin að vera í dag að undirbúa smá afmæliskaffi,, Gabríel og Elísabet voru heima að taka smá til og svona á meðan að við Hanna fórum í kringluna til að finna afmælisgjöf og það gekk bara bærilega,, fengum handa honum buxur og skó og Hanna keypti handa honum bol. í kvöld kom svo fólkið okkar í kaffi og eru þau bara ný farin. Maggi hringdi í strákinn í dag og bauð honum að koma í vinnuprufu á morgun. ohhh hvað ég ætla að vona að hann standi sig þar, þetta er nú ekki búið að vera lítið vesen að koma honum í að gera eitthvað.
Í gær fórum við Hanna í kaffi til Guðrúnar í vogunum en komum við í Garðheimum og keyptum þennan svakalega fína blómvönd handa henni, en hún var að missa pabba sinn á föstudaginn, svo kom Sævar bara beint til hennar úr vinnunni. Við borðuðum Pissu hjá þeim en fórum svo heim bara upp úr 9 um kvöldið.
það er allt að skríða saman með nýja fressinn og kemur hann sennilega til landsins í byrjun oktober og þá heim í byrjun november,,ég hlakka mikið til :))
þar til næst
Adios
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2006 | 14:14
menningardagur
já menningardagur væri mun réttara að nefna gærdaginn þar sem allt sem heitir menningarviðburðir fóru fram í gærdag og jú eitthvað fram á kvöld en nóttin telst nú seint til menningar, ómenningarnótt hefði verið rétt nefni á nóttinni.
Ég var semsagt niður í bæ með Hönnu og Sævari á menningar degi og röltum við um og skoðuðum sitt lítið af hverju enda var viðburðum dreift um allan bæ.Við vorum nú alveg sammála um að það hafi alveg vantað stórtónleika rásar tvö sem hafa undanfarin ár verið á hafnarbakkanum og flugeldasýningin sem setti svo endapunktinn á þetta allt saman átti víst að vera sú flottasta hingað til ,,,en ég held að ég hafi nú séð þær tilkomumeiri en þetta.... Okkur gekk mjög vel að koma okkur heim enda bílnum lagt upp við Hlemm þannig að mesti tíminnn fór jú bara í að koma okkur að bílnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2006 | 13:14
Gleðiganga og menningarnótt
ég fór ásamt Hönnu Björg og Sævari í gaypride gleðigönguna á síðastliðinn laugardag og vá maður hvað það var mikið af fólki, en þetta var voða gaman og margir alveg svakalega flottir búningar.Annars hefur vikan verið fremur róleg og maður ekki gert mikið, ég var reynadar að vinna niður í fröken um síðustu helgi og var það alveg ágætt svona þegar að maður er bara að taka eina og eina vakt en ekki svona alveg fast.
Við Stefanía erum búnar að vera á fullu í að skoða fressa til að flytja inn og erum sennilega búnar að finna einn rosa flottann sem við erum að reyna að pressa í gegn um næsta holl í einangrunarstöðinni en það ætti að koma í ljós á næstu dögum hvort að það tekst. Stefanía kom í gærkvöldi með læðuna mína úr Spessíar goti og er hún að aðlagast bara nokkuð vel, það var auðvitað soldið hvæs og svona í gærkvöldi en þetta er allt að koma og hún er farin að leika aðeins við litlu strákana. Annars á ég ekki von á því að halda henni heldur er ég að spá í að selja hana bara þar sem ég vil endilega halda litlu Victoríu, en þetta kemur allt í ljós :)
svo er það menningarnótt á morgun hmmm , Sævar er alveg búinn að gefa það út að hann ætli ekki að fara með mér niður í bæ þannig að ég er að spá í að "hanga " með Hönnu bara á morgun :))
þar til næst
adios
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2006 | 17:27
allt í rólegheitunum
það er nú allt búið að vera bara rólegt hérna undanfarna daga. Sævar búinn að vera í fríi og hefur farið eitthvað að veiða og svona, Hanna Björg komin í fæðingarorlof og er þar af leiðandi meira heima. Hún er búin að vera að dunda sér við að þvo og strauja barnafötin,, rosalega dugleg
Ég er búin að vera að dunda mér við að uppfæra heimasíðuna okkar www.fjalldrapa.com , setja inn nýjar myndir af kettlingunum, enda kominn tími til og svo fór ég í að sækja um fullt af vinnu fyrir strákinn og ég ætla bara að vona að það komi eitthvað jákvætt út úr því, en ekki nennir hann að gera neitt í þessum málum sjálfur.
Ég er nú svona að spá í að fara rífa mig upp og fara að gera eitthvað, Vallý hringdi í mig í morgun og var að reka aðeins á eftir mér í að koma með sér í ræktina og ég er að spá í að gera það bara eftir helgi,, það þýðir ekki að hanga bara svona allan daginn og gera ekki neitt nema bara éta á sig gat.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2006 | 23:42
komin heim aftur :)
Jæja þá er enn ein verslunarmannahelgin enn liðin og við komin heim frá Djúpavatni. Þetta var alveg hreint bara fín helgi og ég held bara að öllum hafi liðið bara ágætlega. Það var mikið reynt að veiða en það kom nú bara lítið sem ekkert á land nema einn 4 punda regnbogasilungur sem Sævar fékk strax á fyrsta kvöldi svo komu 3 pundarar,1 bleikja og 2 urriðar,,og allir þessir ætu komu í hlut okkar fjölskyldu en auðvitað komu svo einhverjir tugir titta sem eru kanski 100-200gr og varð að drepa eitthvað af þeim vegna þess að þeir höfðu alveg kokgleypt maðkinn en svo voru það einhverjir sem fengu líf. Ég fór út með flugustöngina hennar mömmu og pabbi kenndi mér að kasta, það gekk líka bara svona ljómandi vel. Það var mikið minna spilað en undanfarin ár og enn minna drukkið og ekki fannst mér það verra.
Ég ætla að setja inn hérna einhverjar myndir svo að María geti nú séð hvað það var gaman hjá okkur ,,,,Óli kom aðeins í heimsókn á laugardeginum og þá var tekin smá mynda syrpa af honum þar sem að hann vildi nú endilega pósa fyrir myndavélina hahahahaha
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)