1.2.2007 | 20:37
búin að græja fríið
já eins og þúsundir annarra Íslendinga ætlum við að leggja land undir fót í sumar og loksins í fyrsta skipti ætlum við öll fjölskyldan að fara saman. við ætlum sem sagt að fara til Benidorm í 2 vikur. Mesti höfuðverkurinn hjá mér var að fá einhver til að passa fyrir mig kisurnar mínar en því er sem betur fer reddað
en Stefanía er búin að redda fríinu okkar með því að taka að sér að gefa kisunum að borða, kjassa þær og knúsa og kanski að greiða pínulítið
úff léttirin var þvílíkur þegar að þetta var komið á hreint.
Athugasemdir
það verður stuð hjá ykkur þarna úti að fara öll saman
magga audda ;Þ (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.