20.11.2006 | 14:06
snjókorn falla,,, á allt og alla,,,,,,,,,,
þá er kominn snjór hér í henni Reykjavík, ég var að vinna aðfaranótt sunnudagsins og snjóaði alveg helling alla nóttina svo ég fékk nú pínulítið í magann yfir því að komast alla leiðina heim í árbæ kl 7 um morguninn því að ég var/er enn á sumardekkjunum, en það gekk nú bara eins og í sögu, að vísu voru bílar fastir hér og þar og stoppuðu umferð en ég komst þetta klakklaust,án vandræða. Keyrði auðvitað bara rólega og svona en komst svo að vísu ekki inn í stæðið mitt því það var allt á kafi hérna uppfrá en ég náði að troðast i eitthvað annað stæði. Sævar hefur verið á sjó alla helgina svo að það er ekki enn búið að skipta um dekk svo að ég hreyfi ekki bílinn á meðan :) en það verður nú vonandi gert núna í kvöld eða á morgun.
Þetta er nú meiri snjór heldur en maður hefur séð í Reykjavík lengi.
Í gær fékk ég að gefa Alexöndru að borða, það var sem sagt í fyrsta skipti sem hún fékk að borða og gekk þetta bara þvílíkt vel og þetta var bara eins og hún hefði bara aldrei gert neitt annað :) Hérna er smá myndasyrpa af henni :)))
Athugasemdir
mikil snjór hjá ykkur Vá ... rosalega er alexandar mikið krútt á myndunum þarna ...hahaah svipurinn ...ekki smá krútt maður bara bráðnar hér...
magga audda ;Þ (IP-tala skráð) 22.11.2006 kl. 14:36
Enginn smá snjór !! hann verður nú örugglega jafn fljótur að fara og hann kom, en annars hvað þú ert svakalega heppinn amma,að fá að gefa litlu skvís að borða í fyrsta sinn þið eruð svooo flottar saman,og Alexandra er algjör dúlla,en við heyrumst,kv. Dóra M.
Dóra Maggý, 23.11.2006 kl. 15:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.