9.5.2006 | 11:57
country roads ,,country roads
já það má nú eiginlega segja að það hafi verið ferðalag í lagi sem við mæðgur höfum verið á... á miðvikudagskvöldið þá hringdi Helga í mig og sagði að læðan væri svo svakalega mikið veik og kettlingurinn líka,, hana vantaði góða kettlingamjólk og túttur á sprautuna, ég tók þá þessa skyndiákvörðun að renna bara þessa 400 km með þetta til hennar og þá gæti ég nú bara farið til Sævars líka. Ég Tók Elísabet með mér og við lögðum í hann kl 21:00 á miðvikudagskvöldið og við vorum komnar til Siglufjarðar um kl 01:00, sváfum þar hjá Sæbba um nóttina en héldum svo áleiðis til Akureyrar á fimmtudeginum, tókum Lágheiðina svo að ferðin tók okkur um 90 mín sem var bara í góðu lagi því að við höfum aldrei farið þetta áður og það var bara gaman að skoða sig pínulítið um. en Halló að fara svo í gegnum einbreið göng úffff........ það fannst okkur báðum frekar mikið scary,,fyrst voru það jú Strákagöngin og svo Múlagöng. við vorum hjá Helgu í einn sólarhring og fórum svo aftur til Sæbba.
Ég get nú ekki sagt með góðri samvisku að mér hafi líkað vel við þennan kaupstað, Siglufjörð,,, þvílík innilokunartilfinning sem helltist yfir mig þegar að ég kom þangað og svo aftur þegar að ég kom á föstudaginn,,,nei ég held að ég gæti bara aldrei búið á þessum stað,,,það er bara one way out og hvað ef það lokast ?? þá er maður bara fastur þarna einhverstaðar á hjara veraldar.. úff
en við allavega ákváðum að vera fram á laugardag og kíkja svo á Sauðarkrók en svo kom í ljós að Dóra var að vinna á laugardaginn svo að við ákváðum að bíða bara fram á sunnudag og heimsækja hana þá. á laugardeginum leiddist okkur eiginlega bara því það er nú ekki mikið um að vera á Siglufirði svo við fórum bara í að plokka okkur og eitthvað svona dúllery á meðan við við biðum eftir Sæbba sem kom af sjónum um 7 leitið, þá fórum við á pizza67 og fengum okkur eina sjávarrétta. fórum svo með lísu niður á bryggju til að lofa henni að dorga en það var nú ekki einusinni fiskey þarna hahahahaha en fullt af máv sem var svo sem ekkert á móti beitunni hennar.
á sunnudaginn fórum við svo til Dóru og jú hún var að vinna þá líka svo ég var nú eiginlega að spá í að renna bara heim en það var ekki tekið í mál og heimtaði dóra að við myndum nú gista hjá henni eina nótt og ákváðum við það hahahaha nema hvað að henni fannst það nú ekki mikið mál að ég fengi bara frí fyrir lísu í skólanum einn dag í viðbót hahahaha en uppgvötaði svo að þá þyrfti hún jú að gera það sama fyrir Guðrún Ástu.Hahahahaha þeta leysti sig nú allt og vorum við Dóra bara á þvílíkri kjaftatörn allan daginn, fórum svo á kaffihús um kvöldið hmmmm já eina kaffihúsið sem var opið og þar þurfti að kalla á kokkinn til að útbúa sviss mokka hahahahahaha og svo lokaði kl 22:30 og svo segja þeir að það sé sæluvika á króknum hahahahaha þvílík sæluvika þetta,,,,kanski það sé sæluvika hjá starfsfólki veitingastaða bæjarins hahahahaha.
Í gær ´samkjöftuðum við Dóra ekki og kanski ekki skrítið þegar maður er að hittast á einhverra ára fresti, þá hefur maður svo mikið um að tala. en við Elísabet lögðum af stað heim rétt fyrir 5 og vorum komnar heim rét fyrir 8 í gærkvöldi. þá var nú ekki mikið gert enda maður algerlega búinn eftir svona ferðalag, kíktum bara á sjónvarpið og fórum svo snemma að sofa :)
Takk Dóra fyrir frábæran Sólarhring á króknum ;))
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2006 | 12:44
Grasekkja
þetta er nú búið að vera frekar erfið vika, Sævar fór á sjóinn fyrir viku síðan og kemur svo bara heim hálfsmánaðarlega en er búinn að vera á dagróðrum í heilt ár, mér finns þetta bara hrilalega erfitt og er alveg greinilegt að ég er bara orðin allt of háð honum. Það kom svo óvænt upp á að hann kom heim í gær og verður heima þar til á morgun og mér finnst það alveg æðislegt.
Strákurinn virðist ætla að beyla á þessari vinnu sem að hann er í núna, eina ferðina enn. Hann er ekki búinn að mæta í heila viku og hefur enga afsökun fyrir því, bara að hann meikar það ekki að mæta í vinnuna, ég held að það sé eitthvað að hjá honum, svona án gríns þá held ég að það sé einhver félagsfælni og jafnvel kvíði sem er að hrjá hann því þetta fer alltaf í þetta sama far hjá honum þegar að hann er búinn að vera að vinna í svona 3-4 vikur, þá gefst hann bara upp eða eitthvað.
Ég fór með Hönnu í sónarinn á mánudaginn, váá hvað það var gaman, þetta er orðið svo svakalega skýrt. Við fengum að vita að hún á von á lítilli prinsessu. það var heldur betur fjör í þeirri litlu á meðan við vorum í sónarnum , það var eins og hún væri að jóla alveg á fullu. Ég fór í Hagkaup og keypti garn í kjól á prinsessuna og er að verða búin með hann, þá er bara að fara og ná sér í meira garn og prjóna eitthvað meira. Það er svo miklu meira gaman að prjóna finnst mér á stelpur heldur en stráka, það er einhvernvegin hægt að gera svo miklu meira dúllerý.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2006 | 17:52
bara rólegheit
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2006 | 16:08
Fermingarholskeflan
já það má sko með sanni segja að það sé alger holskefla þetta árið, það eru heil fimm börn að fermast innan fjölskydunnar sem þýðir auðvitað tilheyrandi kostnaður. Það styttist nú óðum í að ég fari að standa í þessu líka en það er nú ekki nema eitt ár í að ég láti ferma litla barnið mitt, já yngsta barnið svo að það verður nú í síðasta sinn sem ég stend í þessu. Við erum nú þegar farin að spá aðeins í það hvernig þetta á allt að vera enda ekki seinna vænna hahahaha hún ætti nú að fá að vita dagsetningu fljótlega í haust og þá munum við byrja undirbúning um leið, þetta verður sko ekki gert allt á síðustu stundu eins og síðast enda endaði það með heimaveislu því að allir salir voru uppbókaðir. Við ætlum að reyna að gera þetta þannig núna að við verðum bara gestir í eigin veislu,,,,sem sagt kaupa alla þjónustu og mat og þurfa ekki að gera neitt nema að mæta. það kostar jú eitthvað meira en ég held að það sé bara alveg þess virði,,, að vera ekki alveg búin á því í veislunni sjálfri.
Svo eru það páskarnir og ég er að vinna um alla páskana en það góða er að þetta er síðasta vinnuhelgin mín þarna í sjoppunni,,,jiii minn hvað ég er ánægð með að vera að hætta. Það getur nú samt verið að ég fái aðra vinnu svona á nóttunni,,,á bar ,,, það ætti að vera soldið öðruvísi þar sem maður er ekki að vinna til kl 7 á morgnana heldur lokar þar kl 3 og maður ætti þá að vera kominn heim um 4 í síðastalagi. þá er helgin ekki alveg ónýt þó að maður sé að vinna eins og þegar að maður er þarna í sjoppunni.
Ég er búin að vera að vinna að heimasíðu fyrir vinafólk mitt sem er að byrja að rækta ketti og fer allur minn tími í það þessa dagana en það gerir nú svo sem ekkert til þar sem mér finnst þetta bara svo hrikalega gaman :) Það verður nú samt örugglega ekki hægt að puplishera henni fyrr en eftir páska því að netþjónustan opnaði ekki fyrir aðganginn í gær eins og þeir lofuðu og auðvitað er allt svona lokað núna í einhverja 5 daga. Þessi símafyrirtæki og netþjónustur eru allar eins lofa alltaf að gera miklu meira heldur en þeir geta staðið við.
já svo eru komnar í heimsókn til mín 2 kisur sem ætla að vera hérna í viku til 10 daga, læðan er kettlingafull og kemur hún sennilega til með að gjóta hérna hjá mér þar sem áætlaður tími hennar er eftir 5 daga, hahahaha þá verð ég sem sagt ljósmóðirin :) þetta er lítil og nett silvur persa læða og ég bíð bara spennt eftir að fá að sjá litlu kettlingana hennar ,, annar er hún svo nett að ég hef nú grun um að þetta sé nú ekki meira heldur en bara einn eða í mesta lagi tveir kettlingar hjá henni. Vonandi bar að hún komi þá með allavega einn læðu kettling því að stefnan hjá eiganda læðunnar er að halda eftir einum læðuketting. En já þetta verður sem sagt spennandi að fylgjast með og fá að taka þátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2006 | 17:29
jamm.....
fór í smá Idol partý í gærkvöldi og fékk mér smá öllara,,,já bara smá því það er komið næstum hálft ár síðan að ég fekk mér í glas síðast svo að ég þurfti nú ekki mikið til að byrja að kippa, 3 bjór og mín orðin bara vel í því og fór bara í vatnið hehehehe. skruppum aðeins út og vorum komin heim aftur um 3 í nótt.
þvílíkt drama sem búið er að vera í gangi núna undanfarna daga,,, ég sagði upp í vinnunni og yfirmaðurinn lætur eins og það sé alfarið mitt að finna mér eftir mann,,,ohh það er svo erfitt allt þetta stúss í kringum fyrirtækið og að þurfa svo að finna nýtt starfsfólk buhu ég á svo erfitt með að standa í þessu buhu en halló þá á manneskjan ekki að vera að standa í fyrirtækjarekstri, en ég er allavegana að hætta, ég ætla ekki að standa í þessu djobbi fyrir þessi skítalaun, þá er tíma mínum betur farið bara hérna heima, ætla nú samt að taka smá aukavakt fyrir hana í kvöld þó að ég sé nú enganvegin að nenna því:(
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2006 | 11:20
Náungakærleikur
úff áfallið sem ég fékk í gær var nú ekki lítið. Við heyrðum einhvern svakalegann dynk frammi á gangi og ég sendi kallinn fram til að tékka á hvað væri eiginlega í gangi ,, þá liggur þar maður , meðvitundarlaus og í eigin blóðpolli, hann hafði sem sagt dottið niður stigann og sennilega rotast. við hringdum í 112 og komu 3 sjúkrabílar á no time,, en það sem ég fór að pæla svona eftir á var að maðurinn hefði getað drukknað þarna í eigin blóði því það kom enginn fram á gang fyrr en það heyrðust lætin í mér þegar að ég var að tala við manninn í 112, þau sögðu öll að þeim hefði einna helst dottið í hug að einhver væri að flytja og rekið einhverja mublu í stigahandriðið. maður spyr sig er fólki orðið alveg sama um allt í umhverfi sínu.
Jæja við erum enn að koma okkur fyrir hérna þó að við höfum flutt inn 10 febrúar þá er ennþá fullt af dóti enn í kössum og áfrágengið. Við fórum í gær í Ikea og versluðum einhverjar hillur og svona til að fá pláss undir eitthvað af þessu dóti okkar og svo auðvitað fyrir bækurnar mínar sem mér finnst nú reyndar að ég eigi aldrei nóg af en dóttir mín horfði alveg forviða á mig og spurði mig hvað ég væri eiginlega að gera með allar þessar bækur,, afhverju ég henti þessu nú ekki bara því ég væri nú hvort eð er búin að lesa þetta allt saman :) hahaha nei ég hélt nú síður enda kemur nú örugglega að því að hún fer að læðast í litla bókasafnið hennar mömmu sinnar því hún hefur mjög gaman af því að lesa,, eiginlega eina barnið mitt sem hefur gaman af því.
Svo er það einkasonurinn, ég veit nú ekki alveg hvað ég á að gera við hann, það var búið að redda honum vinnu í síðustu viku og hann meldaði sig svo veikann í fyrradag og mætti heldur ekki í gær, heldur liggur hann heima hjá vinkonu sinni og reykir hass alla daga. Fyrir honum er það ekki dóp heldur eitthvað sem "allir" gera og hann varð frekar vondur þegar að við vorum að tala um það að við kærðum okkur ekki um dópista inn á heimilið,,,,,"Ertu að kalla mig dópista" sagði hann þá en já auðvitað er þetta ekkert annað. Hann er svo blindur á þetta sjálfur og telur sig alveg geta bara hætt þessu af sjálfsdáðum en er það ekki einmitt meinið hjá öllum fíklum, það er afneitunin á þetta allt saman. Ég gaf honum úrslitakosti í gær um að annaðhvort hættir hann þessu helv...bulli og mætir í vinnuna og er þá bara hérna heima á kvöldin til að byja með og ræðir málin eða hann geut bara flutt heim til þessarar vinkonu sinnar og verið með henni að dópa og rugla ,,,ég gæti ekki staðið í þessu meira.
jæja þá er maður búinn að pústa smá en það þýðir víst ekkert að leggjast í einhverja sjálfsvorkun ,,,,,það er víst svo margir sem hafa það svo miklu verra en maður sjálfur en það er svo sárt til þess að hugsa að þetta sé það líf sem barnið manns kýs að lifa og finnst ekkert óeðlilegt við það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2006 | 18:58
Atvinnulaus
já þá er kallinn orðinn atvinnulaus og er á fullu í að leita sér að vinnu...hmmm ég vil alveg ólm bara nota tækifærið og flytja eitthvert burt af skerinu en hann er eitthvað smeykur við það..það er líka kanski soldið snúið að fara að reyna að finna sér vinnu í öðru landi og leita jafnframt að húsnæði fyrir fjölskylduna. æji já best væri auðvitað ef að maður þekkti einhvern í Noregi eða eitthvað sem gæti þá aðstoðað mann við þetta, ég er búin að vera að leita á atvinnumiðlunum á netinu en að finna pláss á sjó í Noregi er greinilega ekki það auðveldasta þegar að maður er ekki á staðnum. Eitthvað verðum við að finna út úr þessu.
Það verður sennilega ekkert úr þessu í þetta skiptið :( það er nú soldið skondið að krakkarnir éru eiginlega bara spenntari fyrir þessu heldur en ég og ég sem hélt alltaf að það væri ég sem væri sigauninn í fjölskyldunni :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2006 | 19:52
Dýrahátíðin í Víðidalnum
Já við mættum þarna á dýrahátíðina í reiðhöllinni í Víðidal sem VÍS Agría stóð fyrir. þetta var bara voða gaman en það kom nú samt mun minna af fólki heldur en hefur gert undanfarin 2 ár sem var kannski ekki svo slæmt þar sem manni var nú farið að kvíða pínulítið fyrir að vera þarna með dýrin sín í öllu mannhafinu en þetta var bara alveg passlegt.
nú ætti líka að vera komin pása á allt sem heitir sýningar fram á haustið hugsa ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2006 | 14:46
fyrsta færslan.....
já þá er ætlunin að reyna að blogga smá.
En hvað er blogg ? er það einhverskonar dagbók fyrir mig eða er það kanski bara einhver skemmtun fyrir aðra eða jafnvel bara eitthvað til að svala forvitni fólks hmmmmmm....
ja fyrir mína parta þá held ég að ég bloggi bara svona fyrir sjálfan mig, set hérna eitthvað inn sem ég er að gera eða er að hugsa á líðandi stundu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)