Færsluflokkur: Bloggar

stolt mamma/amma

Um helgina var smá ömmuog afa tími en Hanna og helgi skruppu aðeins út úr bænum og ætluðu að vera í sólarhring í burtu, þá fórum við með prinsessuna í heimsókn til ömmu löngu afa langa, það vakti voða lukku og voru þau gömlu að ég held bara glöð að fá okkur í heimsókn Smile Prinsessan var nú samt ekki ánægð með að mamma væri ekki til staðar til að koma henni í svefn og þurfti amman(ég) að rugga henni í svefn og hafðist það á endanum Wink

Annars hafa þetta verið rólegir dagar, einkasonurinn er ennþá fyrir vestan og líkar bara betur og betur eftir því sem tíminn líður og er ennþá jafn jákvæður sem mér finnst bara alveg frábært og í rauninni eiginlega ótrúlegt á miðað við hvað hann hefur alltaf verið á móti þessu batteríi. en það sem gerir gæfumuninn held ég er að  hann fór inn með opnum huga og tilbúinn til að fræðast um þetta allt saman. Þegar að ég talaði við hann í síðustu viku var hann ekkert rosalega jákvæður á að hann myndi endast þarna alveg í 28 daga en svo núna um helgina sagðist hann ætla að klára þetta enda væri hann búinn að sjá það að þarna ætti hann vel heima,,og hann vildi líka "útskrifast",, ekki fara út með "skömm". Ég er alveg ótrúlega stolt af stráknum mínum núna!!

 


búin að græja fríið

já eins og þúsundir annarra Íslendinga ætlum við að leggja land undir fót í sumar og loksins í fyrsta skipti ætlum við öll fjölskyldan að fara saman. við ætlum sem sagt að fara til Benidorm í 2 vikur. Mesti höfuðverkurinn hjá mér var að fá einhver til að passa fyrir mig kisurnar mínar en því er sem betur fer reddað W00t  en Stefanía er búin að redda fríinu okkar með því að taka að sér að gefa kisunum að borða, kjassa þær og knúsa og kanski að greiða pínulítið Cool  úff léttirin var þvílíkur þegar að þetta var komið á hreint.

spennan búin

úff þá er leikurinn búinn,, þvílík spenna. þeir stóðu sig nú rosalega vel strákarnir, héldu allavega okkur hérna heima í þvílíkri spennu í rúmann klukkutíma,, með tilheyrandi öskrum og látum,,,hefði nú ekki komið mér á óvart að fá kvörtun frá nágrönnum vegna láta hahahaha.

en hér er allt búið að vera í rólegheitunum og einkasonurinn búinn að vera hema síðan á laugardag en fór svo vestur í morgun, er að vísu ekki búin að heyra í honum en hringdum í ráðgjafann áðan til að fá bara að vita að strákurinn hafi komist heilu á höldnu.

ég er búin að skrá 5 ketti á sýninguna sem verður nú vonandi núna aðra helgina í mars en það eru bara 22 kettir skráðir þannig að skráning gengur ekkert rosalega vel. maður er nú að halda í vonina að það komist skriður á þetta um mánaðarmótin,, svona þegar að fólk er búið að fá útborgað og svona. en ég fer nú með eina kisuna enn en hún verður víst skráð inn sem got og þá með sínum ræktanda hahaha já hún er alveg ný sú og kemur til með að flytja til okkar sennilega í næstu viku, það er nú svona smá spenna yfir því öllu saman.

jæja ég ætla að fara að gefa litlu kisukrúttunum pela og fara að sofa :)


krútt

var að gefa hérna í gærkvöldi og tók nokkrar myndir,,,, ákvað að skella inn hérna því þau eru svo mikið krútt, nýbúin að borða og skítug eftir því hahaha þau eru svo miklir klaufar

kisukrútt


mogginn 25 november 1990

Ég var að skoða inn á Tímarit .is og var að skoða gömul mogga blöð þegar að ég sá þessa frétt síðan 25 nov 1990.

mogginn 25 nov 1990

Eitthvað hafa þeir hjá mogganum ekki skoðað hlutina almennilega. Nema að presturinn sem skírði hann föður minn hafi ekki fært inn í kirkjubækurnar á sínum tíma, en eitt veit ég þó að pabbi var skráður í þjóðskrá þegar að þessi frétt kom í mogganum. Hann var skírður eftir því sem mér skilst 1953 eða 1954. Ég lét svo skíra minn strák í höfuðið á pabba árið 1989 þannig að hann er þó einn af þessum 3 sem talað er um þarna :)

En talandi um Gabríel þá kom hann heim þessi elska í gær og var bara í nokkuð góðu jafnvægi og rosalega jákvæður, hlakkar bara til að halda áfram með prógrammið á þriðjudaginn.


símtal frá syninum

"Mamma ég finn það núna hvað ég þarf á lyfjunum mínum að halda" var eitt af því fyrsta sem sonurinn tikynnti mér þegar að ég loksins heyrði í honum í kvöld. Jahá það var og.... loksins þegar að engin neysla er í gangi þá finnur hann það. það segir mér heilmikið um það hvað neyslan er í rauninni búin að standa lengi yfir þó að hann hafi sagt annað. en það eru c.a 2 ár síðan að hann hætti á lyfjunum því hann stóð svo fastur á því að hann þyrfti barasta ekkert á þeim að halda.

nú er hann búinn að vera inni á Vogi í 4 daga og hljóðið í honum var bara nokkuð gott, hann er jú alveg á bleiku skýji og ætlar alveg að gleypa heiminn en ég held að ef hann fær lyfin sín þá eigi hann miklu meiri möguleika á því að verða edrú, þá heldur hann betra jafnvægi. Ég þarf bara að vera í sambandi við ráðgjafann hans og læknir þarna inni og athuga hvort að það borgi sig ekki að panta tíma hjá Ýr og láta hana í málið.

Sjálf hef ég ekki verið í nógu góðu jafnvægi, ég er alltaf að loka mig meira og meira af og alltaf minna og minna sem ég geri, það sem virðist halda mér nokuð gangandi þessa dagana eru kisurnar mínar blessaðar enda af nógu að taka þar. Ég er að gefa kettlingunum þurrmjólk nokkrum sinnum á dag og svo hefur verið eitthvað smá lækna stúss með nýja fressinn og já alveg hellings vesen með pappírana hans en þetta er nú allt svona að skríða saman. Ég er búin að skrá á sýninguna í mars og vona ég bara að ég nái að fá pappírana hans Blue í tæka tíð fyrir sýningu.

Nú er bara að fara að ýta á MÖGGUNA að skrá sína hahahhaha

adios


kisublogg

Blueúff þá er þessi pakki að verða búinn,,það er að segja innflutningurinn á á Blue, hann er kominn heilu á höldnu. Við Stefanía og Hanna fórum út í einangrunarstöð í gær og náðum í prinsinn. Við urðum sko ekki fyrir vonbrigðum með strákinn :) það fyrsta sem maður tók eftir voru þessi stóru bláu augu sem störðu á okkur þegar að komið var inn í búrið hans. þrátt fyrir svakalegt hundgá og brjáluð læti þá var hann alveg poll rólegur. Við fórum með hann beint til dýralæknis og henni leist bara rosalega vel á strákinn og talaði um það hvað hann virlaði sterkur karakter svona við fyrstu kynni o gég verð nú bara að vera ´smmála því. svo fórum við með hann heim og böðuðum hann og svo tóku við fyrirsætustörf hjá honum hahaha já við Stefanía tókum eitthvað á fjórða hundrað myndir af honum. Hann er nú búinn að vera nokkuð rólegur hérna svona fyrsta sólarhringinn,,Didde hefur eitthvað verið að derra sig við hann en það virðist nú bara vera í nösunum á honum. Ég hafði Blue lokaðann inni í nótt og svo í morgun opnaði ég aftur og allt er í himnalgi núna .....ennþá allavega.

Við sævar skruppum svo með Lillý í pörun í gærkvöldi, við sátum nú í smá stund en ég heyrði ekkert í henni þannig að ég veit ekki hvort að breimið hafi dottið niður við það að fara svona, en það kemur þá bara í ljós og hún fer þá bara aftur næst þegar að hún breimar.


ja må hon leva, ja må hon leva, ja må hon leva ute hundrade år .....

Litla barnið mitt er 14 ára í dagWizard það er svo skrítið hvað þessi kríli eldast og svo stendur maður sjálfur í stað,,ég skil þetta ekki. það fer að styttast í að litla barnið nái mömmu sinni, ja hún er nú svo sem búin að ná mér á hæðina Whistlingog nokkuð langt síðan það var en aldurslega séð þá vantar aðeins upp á LoL Hún ætlar víst að fá að halda smá veislu á morgun fyrir  vinina en í dag ætluðu einhverjir ættingjar að kíkja við en það verðu víst lítið úr því vegna veðurs hjá einhverjumWink og sólarlandaferðar hjá öðrum Shocking þannig að kökur og heitur réttur verður bara á boðstólnum hérna fyrir heimafólkið InLove

Ég var í smá fæðingarhjálp í fyrrakvöld Wink en hjá Rögnu voru að fæðast kettlingar og von var á svona 2-3 kettlingum en viti menn það virtist koma endalaust frá læðunni og endaði það með heilum 7 kettlingum já 6 stelpum og svo kom einn lítill strákur sem rak lestina W00t

Á morgun förum við Stefanía að sækja strákinn til Hafna, í einangrunina en prísundinni er loksins að ljúka hjá elsku stráknum, sá held ég að verði feginn að losna. Við erum alveg ferlega spenntar. Það er búið að ákveða að fara með hann heim og baða hann og reyna svo að ná fullt af flottum myndum en það er víst eitthvað sem við eigum ekki af honum að minnsta kosti GetLost


3 dagar í bið

maður hefur nú ekki verið sú duglegasta að setja inn færslu hmm ég verð greinlega að fara að taka mig aðeins á hérna.

það er loksins búið að pakka niður jólunum en eitthvað finnst manni nú íbúðin tómleg og grámygluleg, sé eiginlega soldið eftir að hafa ekki skilið eftir eitthvað af  jólaljósunum. Það er búið að vera alveg nóg að gera þannig, kettlingarnir dafna allr vel og eru flest að verða búin að opna augun.

Nú eru bara 3 dagar þar til við fáum að berja prinsinn okkar augum en hann losnar úr einangrun á föstudaginn og megum við Stefania sækja hann um kl 11, ég er rosalega spennt enda hefur maður svo sem ekki fengið að sjá almennilegar myndir af honum, það er bara vonandi að maður verði ekki fyrir neinum vonbrigðum. Ég ætla að taka hann heim til mín til að byrja með til að setja hann í bað og svona en svo verðu líka farið með hann til dýralæknis í "ástandskoðun"

Ég er búin að vera að vesenast í því að fá pappírana hans svo að ég geti nú skráð hann hérna í félagið okkar og virðist það ætla að verða smá vesen, ætli það endi ekki með því að ég verði að hafa samband við klúbbinn úti og láta þá sjá um þessi mál þar sem ræktandinn okkar er greinilega ekki að vinna vinnuna sína. Hvort að þetta næst allt saman fyrir sýningu veit ég ekki en ég ætla bara að vona það, það verður nú frekar svekkjandi ef að maður getur svo ekki farið með hann á sýninguna eftir allt saman.

Ég er svona aðeins að byrja að velta fyrir mér hvaða kisur ég tek með mér enda ekki seinna vænna þar sem skráning fer að hefjast en ætli það verði ekki 4-6 kisur í það heila eins og venjulega en ég get ekki tekið neina kettlinga núna þar sem þau eru of ung en ég verð með kettling samt sem áður hú hú en fjölskyldan er að fá nýjan kettling um næstu mánaðarmót og það er ekki persi heldur alveg ný tegund fyrir okkur. Sævari og Elísabet langaði svo svakalega og hefur langað lengi í svona kött svo ég ákvað að slá til og kemur krúttið sem sagt um næstu mánaðarmót og bíðum við bara spennt. Elísabet ætlar að taka það að sér að sýna hana þar sem hún verður "hennar" köttur. Hanna Björg ætlar að taka Didde á sýninguna og er eitthvað að velta fyrir sér hvort hún eigi að taka Furu líka því Þau eru núna "hennar" kettir og ég fer sjálfsagt með Lillý, Droopy,Kastaníu og svo Blue ef að pappírarnir hans verða komnir í lag.


Mikið í gangi á stóru kisuheimili !!!!

 

Gleðilegt ár allir saman!!!!! 

úff það er langt síðan ég hef eitthvað skrifað hérna inn og mikið búið að ske síðan síðast. Jólin voru yndisleg í alla staði en við vorum hérna heima á aðfangadagskvöld ásamt Hönnu, Helga og litlu prinsessunni. Þvílíkt pakkaflóð..... það tók okkur örugglega um 3 tíma að taka upp og allir fengnu eitthvað þarflegt og fallegt. Við kíktum svo í kaffi suður í Hafnarfjörð seinna um kvöldið og svo fórum við í mat í Hafnarfirðinum á jóladag en við stoppuðum þó ekki nema stutta stund því að ég átti jú alveg eins von á að Lovely færi að gjóta hvenær sem var. Annan í jólum vorum við svo bara heima í rólegheitunum og eins 3ja í jólum en þá kom Lovely með kettlingana sína, 2 colorpoint stelpur, eina tortie bröndu, eina blá krem,,,kanski bröndu og svo einn color point strák.sem sagt 5 kettlinga.

Um áramótin fóru Hanna og litla fjölsk. í mataboð til tengdaforeldranna en við hin vorum hérna heima í matnum en svo fór Elísabet til Tönju en Gabríel var heima framyfir miðnætti. Við ákváðum að vera bara heima vegna allra kattanna og eins áttum við von á öðru goti hvað á hverju. Við vorum svo að passa litlu Alexöndru um nóttina svo að það var bara allt í rólegheitunum þannig séð,,,nema auðvitað var litla skottan ekkert á því að fara að sofa með ömmu og afa svo hún hélt uppi fjöri til 04:30 á nýársdagsmorgun, þá loksins náði afinn að svæfa hana hahahahaha.

2 í nýári fæddust svo 4 kettlingar, 2 strákar og 2 stelpur. Þannig að núna er ég með 9 kettlinga úfff það verður eitthvað fjör eftir einhverjar vikur þegar að þau verða farin að hlaupa hérna um allt og leika sér hahahhahaha já þá held ég að maður verði sko að passa vel upp á hvar maður stígur niður.

Það hefur sem betur fer gengið vel með litlu krílin ennþá og ég hef ekki þurft að skipta mér neitt af þeim, mömmurnar mjólka og allt í góðu og vonandi verður bara framhald á því og að ég þurfi ekkert að grípa inn í með pelagjöf.

Ég er ekki farin að setja neinar myndir inn á vefinn ennþá af kettlingunum en fer að gera það svona þegar að þau eru búin að opna augun og svona, annars opnaði svarta tortie læðan augun í gær,,fyrst af öllum enda er hún lang stærst en þau eru núna vikugömul (eldri grúppan)

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband